Verkfærasalan styður verklega kennslu í tæknifræði

Tæknifræðideild HA/HR fékk á dögunum handverkfæri að gjöf frá Verkfærasölunni. Í tilkynningu á vef Háskólans á Akureyri í dag segir að verkfærin muni nýtast í nýrri verklegri aðstöðu deildarinnar við skólann, styðja verklega kennslu og verkefnavinnu nemenda og stuðla að námi í heimabyggð.
Gjöfin er kærkomið framlag til uppbyggingar tæknifræðinámsins á Akureyri, þar sem stúdentar fá tækifæri til að tengja fræðilega þekkingu við hagnýt viðfangsefni.
„Verkfærin munu nýtast vel í nýrri verklegri aðstöðu deildarinnar við HA og koma að góðum notum fyrir nemendur í verklegri kennslu og verkefnavinnu. Stuðningur fyrirtækja í heimabyggð skiptir deildina miklu máli og hjálpar okkur að efla verklega kennslu og skapa nemendum enn betri aðstöðu til náms. Við þökkum Verkfærasölunni kærlega fyrir rausnarlegan stuðning og velvilja í garð Tæknifræðideildar HA/HR,“ segir Brynjar Sveinsson Lyngmo, stúdent í tæknifræði, á Unak.is.
Nám í iðnaðar- og orkutæknifræði hefur verið í boði á Akureyri frá haustinu 2023 í samstarfi HA og Háskólans í Reykjavík.
„Það skiptir okkur miklu máli að eiga gott og stöðugt samtal við atvinnulífið. Þannig fáum við innsýn í þarfir fyrirtækjanna og getum tengt námið betur við þau verkefni sem bíða nemenda að námi loknu. Stuðningur á borð við þessa gjöf hjálpar okkur að efla verklega kennslu og skapa stúdentum enn betri aðstöðu,“ segir Ólafur Jónsson, verkefnastjóri tæknifræðideildar hjá háskólanum.
Með samstarfinu geta einstaklingar stundað tæknifræðinám í heimabyggð, með áherslu á hagnýta þekkingu og tengsl við atvinnulíf á Norðurlandi.
Tengdar greinar
Uppfært: 16. október 2026





