Konsert nr. 2 fyrir hljómsveit var kosið tónverk ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum í gærkveldi. Verkið er samið af Snorra Sigfúsi Birgissyni fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á árunum 2020 – 2024. Verkið var frumflutt af SInfóníuhljómsveit Norðurlands í September 2024 undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Þetta segir í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar. Þar segir að Snorri hafi sjálfur verið viðstaddur frumfutninginn og að mikill heiður sé fyrir Sinfóníuihljómsveit Norðurlands að hafa frumflutt verkið, sérstaklega í ljósi þeirrar viðurkenningar sem það fær.
Rætur verksins liggja víða og hafði Snorri meðal annars til hliðsjónar stemmu sem Þorbjörn Kristinsson (1918–2001) kvað en Þorbjörn var um árabil barnaskólakennari við Glerárskóla. Stemmuna kvað Þorbjörn við eftirfarandi vísu eftir bróður sinn, Hjörleif Kristinsson (1918-1992):
Dags er glæta þrotin þá
þokan vætir kinnar.
Skjóna fætur skripla á
skuggum næturinnar.
Tónlistarsjóður og Launasjóður tónskálda veittu styrki til verksins. Lesa má nánar um Snorra á heimasíðu Menningarfélagsins.