Vel látið af fyrstu tónleikum Tónlistarfélags Akureyrar á árinu

Vel var látið af fyrstu tónleikum Tónlistarfélags Akureyrar á árinu, en þeir fóru fram í Akureyrarkirkju síðastliðinn sunnudag, 15. mars. Um var að ræða flutning á verkinu Stabat mater (Móðirin stóð) eftir Giovanni Battista Pergolesi (1710-1736).

Verkið er samið við ljóð frá 13. öld sem jafnan er eignað Jacopone da Todi og fjallar um sálarkvalir Maríu meyjar við að sjá son sinn pyntaðan og drepinn, en íslensk þýðing Matthíasar Jochumssonar á fyrsta erindis ljóðsins hljóðar þannig:

Stóð við krossinn mærin mæra,
mændi á soninn hjartakæra,
grátin sá, hvar Guðs son hékk.
Sorgin önd og sálu marði,
svo að brjóstið treginn harði
eins og sverð í gegnum gekk.

Verkið var flutt af strengjasveit sem samanstóð af Sofiu Fedorovych og Marteini Ingvasyni sem léku á fiðlur, Eydísi S. Úlfarsdóttur á víólu og Ásdísi Arnardóttur á sellói, og sönkonunum Heiðdísi Hönnu Sigurðardóttur sópran, og Erlu Dóru Vogler mezzósópran. 

Um 80 manns mættu í kirkjuna og hlýddu á flutninginn.

Næsta sunnudag, 22. mars kl. 16:00, verður flutt annað verk við ljóð da Todi, en það er Stabat mater eftir Arvo Pärt. Pärt er eitt virtasta tónskáld samtímans og er verkið mjög vinsælt.

Á sömu tónleikum verður frumflutt verk Þorvaldar Arnar Davíðssonar, Sjö orð Krists á krossinum, sem er verk í sjö köflum þar sem hver kafli á við eina af síðustu setningum Krists:
1. Faðir, fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gjöra.
2. Kona, sjá þar er sonur þinn. Sjá, þar er móðir þín.
3. Sannlega segi ég þér: Í dag skaltu vera með mér í Paradís.
4. Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig.
5. Mig þyrstir.
6. Það er fullkomnað.
7. Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn.

Þorvaldur segir um verkið: „Þegar ég var beðinn um að semja tónverk sem paraðist við Stabat Mater þá ákvað ég að velja í raun sama viðfangsefni nema frá Kristi séð. Sjö orð Krists á krossinum eru gjarnan flutt á föstudeginum langa í kirkjum landsins, m.a. Akureyrarkirkju. Þar koma fram áhugaverð og magnþrungin augnablik við lok píslargöngunnar, þar sjáum við mismunandi sjónarhorn á Kristi, allt frá Messíasi sem uppfyllir ritninguna, til sonar móður sinnar, og kannski áhugaverðast af öllu – einstaklinginn Jesú sem fyllist allt í einu efa. Verkið er í sjö köflum og þar bregður tenórinn sér í hlutverk Krists og fer með orð hans en sópran og mezzósópran leiða út af textanum og auka þannig samhengi hans.“

Flytjendur eru Hlín Pétursdóttir Behrens sópran, Erla Dóra Vogler mezzósópran, Úlfar Trausti Þórðarson tenór, Marika Alavere fiðla, Kristín Halla Bergsdóttir víóla og Ásdís Arnardóttir selló. Stjórnandi er Daníel Þorsteinsson.

Tónlistarfélagið bíður til tónleikanna og eru öll velkomin.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!