Vel heppnaður Farsældardagur Norðurlands eystra

Farsældardagur Norðurlands eystra fór fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri föstudaginn 4. september. Fjallað er um daginn í fréttabréfi SSNE þar sem segir að dagurinn hafi verið vel heppnaður.
Fjölbreyttur hópur fagfólks, fulltrúa stofnana, sveitarfélaga og foreldra kom þar saman til að ræða farsæld barna, samþættingu þjónustu og hvernig styrkja megi samstarf þeirra fjölmörgu aðila sem koma að málefnum barna og fjölskyldna á starfssvæði SSNE.
Karólína Gunnarsdóttir, formaður Farsældarráðs Norðurlands eystra, setti daginn en að því loknu tók við fjölbreytt dagskrá. Fjallað var um hlutverk nærumhverfis barna, reynslu minni sveitarfélaga af innleiðingu farsældar, þjónustu við ungmenni, samfélagsmiðaða löggæslu og starf heilbrigðisstofnana. Þá var einnig sagt frá reynslu foreldra af samþættingu þjónustu og sjónarhorn tengiliða og málstjóra dregið fram.
Ítarlega umfjöllun um daginn má finna með því að smella hér.
Tengdar greinar
Uppfært: 8. september 2026










