Bæjarráð Akureyrar samþykkti að veita BSO frest til 1. maí 2026 til þess að flytja starfsemi sína af lóð við Strandgötu á fundi sínum í morgun.
Bæjarráð samþykkti 21. ágúst 2025 úthlutun lóðar til SS Byggis ehf. sem fól í sér, með vísan í samþykkt bæjarráðs frá 21. desember 2023, að BSO færi með starfsemi sína og húsakost af svæðinu innan sex mánaða frá úthlutun lóðar.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Ásta Magnea Einarsdóttir, framkvæmdastjóri BSO, óskaði eftir framlengdum frest í ljósi þess að framkvæmdir SS Byggis á svæðinu væru ekki skipulagðar á næstunni og þeim væri ekkert til fyrirstöðu að BSO gætu verið lengur á lóðinni.










