MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Vatnslitahátíð Íslands á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Julia-Ustinovich
Julia Ustinovich· kaffid.is

Vatnslitahátíð Íslands, Aurora Watercolor Festival, er alþjóðleg hátíð sem haldin verður á Akureyri 10.-14. september 2026 og í tengslum við hátíðina verður sýning í Listasafninu á Akureyri frá 10.-27. september.

Heimsfrægum vatnslitamálurum er boðið að sækja hátíðina en einnig innlendum málurum sem þykja skara fram úr. Þess er vænst að vatnslitamálarar hvaðanæva að, innlendir sem erlendir, heimsæki Akureyri til að njóta þeirra viðburða sem í boði verða. Verndari hátíðarinnar er listmálarinn Guðmundur Ármann Sigurjónsson og heiðursgestur Nicolás Lopez frá Perú.

Aðrir staðfestir listamenn eru Björn Bernström (Svíþjóð), Julia Barminova (Portugal), Julia Ustinovich (Pólland), Prafull Sawant (Indland) og Julia Barminova (Portúgal/Rússland).
Dómnefnd velur úr innsendum verkum sem verða á sýningunni í Listasafninu 10.-27. september. Á hátíðinni sjálfri, 10.-14. september, verður boðið upp á vinnustofur og námskeið, sýnikennslu og kynningar á vörumerkjum sem tengjast vatnslitum.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026