MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Varasöm piparkökuuppskrift prýðir bakhlið treyjanna

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
H_sumsj_n
kaffid.is

Á vef SAk kemur fram að starfsfólk húsumsjónar og tæknideildar á göngum SAk hafi vakið gleði og athygli í jólalegum búningum sínum nú í aðdraganda jóla. Sérstaka athygli vekur varasöm piparkökuuppskrift sem prýðir bakhlið treyjanna, en búningarnir eru ávöxtur langþráðs draums starfsfólksins.

Varasöm piparkökuuppskrift prýðir bakhlið treyjanna

„Það voru gleðigjafar innan húsumsjónar sem komu með þessa skemmtilegu hugmynd og fengu tæknideildina með sér í lið. Margar hugmyndir voru ræddar um hvað ætti að prýða bakið en að lokum varð þessi piparkökuuppskrift fyrir valinu. Það verður spennandi að sjá hvað verður á bakinu að ári,“ segir Stefán Helgi Garðarsson, deildarstjóri rekstrardeildar.

Jólaskapið smitar sig um allt sjúkrahúsið og hefur annað starfsfólk SAk einnig tekið upp á því að klæðast jólabúningum í tilefni hátíðarinnar. Fjölbreyttar og skemmtilegar útfærslur má sjá á deildum og einingum víða um sjúkrahúsið.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026