Píeta

Vamos stækkar

Vamos stækkar

Húsnæði Vamos, kaffihúss og bar, í miðbæ Akureyrar mun stækka í júlí. 130 fermetrum hefur verið bætt við efri hæð staðarins. Stækkunin hefur fengið nafnið Vamos Grande og verður frumsýnd 15. júlí næstkomandi.

Sjá einnig: Vamos Minifest heppnaðist vel

„Þessi 130 fermetra framlenging á dansgólfinu okkar á eftir að setja alvöru svip á skemmtanalífið á Akureyri. Glænýjir flöskuborðsbásar, auka klósett, fatahengi og bættum við einnig við nýju úti reykingarsvæði. Salurinn hentar einnig frábærlega í útleigu fyrir veislur og annað,“ segir Halldór Kristinn Harðarson, einn af eigendum Vamos.

„Ég er mjög spenntur að sýna ykkur þetta og er ótrúlega stoltur af þessu, það að skemmtanalífið fái að blómstra hér fyrir norðan er mér mjög mikilvægt, ég vona að þið látið sjá ykkur á opnunarkvöldinu,“ segir Halldór.

i

UMMÆLI