Valur ráðinn yfirlæknir og Arna aðstoðaryfirlæknir

Valur Helgi Kristinsson hefur verið ráðinn sem yfirlæknir og Arna Reynisdóttir sem aðstoðaryfirlæknir hjá HSN á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSN í dag sem má lesa hér að neðan:
„Það er okkur mikil ánægja að tilkynna um tvær nýjar ráðningar við HSN á Akureyri.
Valur Helgi Kristinsson hefur verið fastráðinn yfirlæknir hjá HSN á Akureyri í kjölfar auglýsingar um stöðuna. Hann hefur gegnt starfinu frá því í janúar 2026.
Valur er sérfræðingur í heimilislækningum. Hann lauk embættisprófi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 2000 og sérnámi í heimilislækningum á Húsavík og í Örebro í Svíþjóð árið 2007. Að námi loknu starfaði hann sem heimilislæknir í Lundi í Svíþjóð.
Valur þekkir HSN vel, en hann hefur starfað hjá heilsugæslunni á Akureyri frá árinu 2009, að undanskildu stuttu hléi árið 2024 þegar hann starfaði sem heimilis- og trúnaðarlæknir hjá Heilsuvernd.
Arna Reynisdóttir sérfræðingur í heimilislækningum hefur verið ráðin sem aðstoðaryfirlæknir hjá HSN á Akureyri. Arna hefur lokið tveimur árum í lyfjafræði frá Háskóla Íslands en ákvað þá að hefja nám í læknisfræði. Hún lauk námi í læknisfræði frá Debrecen í Ungverjalandi árið 2017 og flutti í kjölfarið heim til Akureyrar.
Hún varði sérnámsgrunnnámi (áður kandidatsnám) sínu á Sjúkrahúsinu á Akureyri og á HSN á Akureyri árin 2017 og 2018 og vann í kjölfarið í rúmt ár á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Arna hefur starfað hjá HSN á Akureyri frá árinu 2020.“
Tengdar greinar
Uppfært: 23. september 2026





