Stjórn Valitor hefur ákveðið að styrkja Jólaaðstoð fyrir fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu um 1 milljón króna.
Jólaaðstoðin er samvinnuverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð.
Félögin hafa undanfarin 4 ár unnið saman að þessu verkefni og hafa um 350 fjölskyldur notið aðstoðar árlega.
UMMÆLI