Stefnt er að því að taka Vaðlaheiðargöng í notkun 1. desember næstkomandi. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá Vaðlaheiðargöngum hf. Og verktakafyrirtækinu Ósafli sf.
Það hefur farið ýmist fram og til baka hvenær göngin verði tekin í notkun en upphaflega var áætlað að göngin yrðu tilbúin í lok árs 2016. Ýmsar ófyrirséðar tafir hafa orðið á verkinu og var því seinkað dagsetningunni fram á haust 2018. Hins vegar var greint frá því í drögum að nýrri verkáætlun, núna í lok júní, að ekki yrði hægt að opna göngin fyrr en í janúar á næsta ári.
Nú hefur það verið staðfest að göngin verði afhent, tilbúin til umferðar, 30. nóvember og verði tekin í notkun 1. desember.
Upphaflega var áætlaður kostnaður ganganna níu milljarðar en stendur nú í 16 til 17 milljörðum, eins og kemur fram í frétt Rúv.
UMMÆLI