Útisvæði við Glerárlaug opnað í dag

Á vef Akureyrarbæjar kemur fram að útisvæðið við Glerárlaug hafi verið opnað í dag eftir umfangsmiklar endurbætur. Gestir geta nú nýtt sér nýja heita potta, kalt kar, útisturtu og saunaklefa. Skipt var um yfirborðsefni á svæðinu og aðgengi og umhverfi bætt. Auk þess voru gömlu útiklefarnir fjarlægðir og skjólveggurinn endurnýjaður að hluta. Hér að neðan má sjá myndir frá Akureyrarbæ.

Afgreiðslutími Glerárlaugar í vetur:

Mánudaga til föstudaga: 06:45–08:00 og 18:00–21:00

Laugardaga: 09:00–14:30

Sunnudaga: 09:00–12:00

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!