Útisvæði Glerárlaugar lokað vegna framkvæmda

Framkvæmdir standa yfir í Glerárlaug og er útisvæðið við laugina því lokað. Sundlaugin sjálf er þó opin. Á útisvæðinu er verið að koma fyrir nýjum heitum pottum, útisturtu, saunaklefa og köldu kari, auk þess sem svæðinu verður breytt og bætt verulega. Þetta kemur fram á heimasíðu Akureyrarbæjar. Þar segir að því miður bendi allt til þess að svæðið opni ekki fyrir jól, en stefnt er á opnun í byrjun janúar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!