MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Úthlutun Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra 2025

Eftir Ingólfur Stefánsson·
batur
kaffid.is

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2025. Styrkjaflokkarnir eru þrír: atvinnu- og nýsköpunarverkefni, menningarverkefni og stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar. Í umsóknaferli fyrir árið 2025 var sú breyting gerð að ekki voru sérstakar áherslur heldur aukið vægi sett á markmið Sóknaráætlunar.

Umsóknir

Alls bárust 147 umsóknir í ár, þar af voru 70 menningarverkefni, 67 atvinnu- og nýsköpunarverkefni og 10 stofn- og rekstrarstyrkir. Umsóknum fjölgaði um 24 milli ára, en þær voru 123 árið 2024. Athygli vekur að fjöldi umsókna um menningarverkefni og stofn- og rekstrarstyrki er óbreyttur milli ára, og fjölgunin því öll í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna.

Úthlutun

Úthlutunarnefndin hefur ákveðið að úthluta 72.500.050 kr. til 76 verkefna, sem gerir árangurshlutfallið 50,3%. Af þessum verkefnum hlutu 14 fullan styrk og að meðaltali hlutu styrkþegar um 62% af umbeðnum styrkjum. Umsækjendum hefur verið tilkynnt um niðurstöðu styrkumsókna en styrkþegar verða ekki gefnir út opinberlega fyrr en eftir rafræna úthlutunarhátíð sem haldin verður 5. desember kl. 15:00.

Tilkynning úr Fréttabréfi SSNE í nóvemer

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026