Leik- og söngkonurnar Þórey Birgisdóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Katrín Mist Haraldsdóttir og Urður Bergsdóttir leika í söngleiknum Litla Hryllingsbúðin sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í Samkomuhúsinu í október.

Þegar hefur verið tilkynnt að Kristinn Óli Haraldsson, Króli, muni leika Baldur, Birta Sólveig Söring Þórisdóttir Auði, Arnþór Þórsteinsson Markús og Ólafía Hrönn Jónsdóttir muni leika tannlæknirinn.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Þórey, Jónína Björt, Katrín Mist og Urður leika önnur hlutverk í söngleiknum. Leikstjóri er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, Bergur Þór Ingólfsson.










