Urður Bergsdóttir bætist í leikarahóp And Björk, of course
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Vegna forfalla mun Urður Bergsdóttir bætast í leikarahóp And Björk, of course!
Urður útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2021. Hún lék burðarhlutverk í útskriftarsýningu leikara á Krufningu á sjálfsmorði eftir Alice Birch í leikstjórn Mörtu Nordal og Önnu Maríu Tómasdóttur í Þjóðleikhúsi og lék í samsköpunarverkinu Requiem for a Woman undir stjórn leikstjórans Uršulė Barto. Urður er einnig meðlimur pönk hljómsveitarinnar The Boob Sweat Gang.
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










