MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Uppselt á Vatnslitahátíð Íslands á Akureyri

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Bjorn-Bernstrom-in-studio
Ljósmynd af Björn Bernström á vinnustofu sinni en hann tekur þátt í hátíðinni· kaffid.is

Uppselt er á Vatnslitahátíð Íslands 2026 sem hefst á Akureyri í næstu viku. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins vegna viðburðarins, bæði innanlands frá og utan. Hátíðin hefst með opnun sýningar á um 90 vatnslitaverkum frá 21 þjóðlandi í Listasafninu á Akureyri fimmtudaginn 10. september.

Til landsins koma fimm heimsþekktir listamenn sem hafa helgað ævistarf sitt vatnslitum en þeir eru Björn Bernström frá Svíþjóð, Nicolás Lopez frá Perú, Julia Ustinovich frá Póllandi, Prafull Sawant frá Indlandi og Julia Barminova frá Portúgal. Allt þetta fólk verður með sýnikennslu í Listasafninu fyrir hátíðargesti og heldur einnig námskeið annars staðar í bænum. Uppselt er á námskeið þeirra allra.

Miðar á hátíðina sjálfa seldust upp fyrr í vikunni en á dagskrá eru, auk sýnikennslu og námskeiða, meðal annars vettvangsferðir til Mývatns og á Svalbarðseyri þar sem málað verður undir berum himni ef veður leyfir. Einnig leiðir pólski málarinn Daria Kudlenkova skissuferðir um miðbæjarsvæðið sem líklega munu vekja athygli vegfarenda.

Sjá nánar á heimasíðu hátíðarinnar www.watercolour.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026