Upplýsingamiðstöð ferðamanna var opnuð í Menningarhúsinu Hofi í dag. Opið verður alla daga frá klukkan 10 til 15 en afgreiðslutíminn lengist í 8 til 16 yfir hásumarið. Greint er frá á vef Akureyrarbæjar.
Í upplýsingamiðstöðinni er fyrst og fremst lögð áhersla á að miðla upplýsingum til ferðamanna um Akureyri og næsta nágrenni en ferðaþjónustuaðilar um allt Norðurland eru hvattir til að koma með kynningarefni sitt í Hof svo sé hægt að segja frá öðrum helstu dásemdum landshlutans.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Það eru Hafnasamlag Norðurlands, Menningarfélag Akureyrar, hönnunar- og gjafavöruverslunin Kista og Akureyrarbær sem hafa tekið höndum saman og standa að rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar.










