MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum

Eftir Ingibjörg Bergmann·
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2019.

Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og
rekstrarstyrki til menningarmála. Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við
árið 2019.

Sækja þarf um rafrænt á heimasíðu Eyþings www.eything.is með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Umsóknarfrestur er til og með kl. 12:00 á hádegi 7. nóvember nk.

Frekari upplýsingar um umsóknarferlið, úthlutunarreglur 2019, og fleira er að finna á heimasíðu Eyþings www.eything.is og atvinnuþróunarfélaganna www.afe.is og www.atthing.is.

Starfsmenn sjóðsins verða með viðveru og vinnustofur á starfssvæðinu í tengslum við úthlutunina þar sem veitt verður ráðgjöf við gerð umsókna. Viðvera starfsmanna uppbyggingarsjóðs verður á eftirfarandi stöðum:

• Grenivík 16. okt kl. 14:00-15:00 Skrifstofu Grýtubakkahrepps
• Húsavík 17. okt kl. 9:00-11:00 AÞ, Garðarsbraut 5 – 2. hæð
• Reykjahlíð 17. okt kl. 13:00-14:30 Skrifstofa Skútustaðahrepps
• Laugar 17. okt kl. 15:30-17:00 Seigla – miðstöð sköpunar
• Þórshöfn 18. okt kl. 10:00-11:30 Menntasetrið á Þórshöfn
• Raufarhöfn 18. okt kl. 13:00-14:30 Skrifstofa Norðurþings
• Kópasker 18. okt kl. 15:30-17:00 Skrifstofa Norðurþings
• Fyrir utan ofangreindar dagsetningar bjóða ráðgjafar upp á viðtalstíma á starfsstöðvum sínum eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar veita:
Ari Páll Pálsson – netfang: aripall@atthing.is  – sími 464 0416
Baldvin Valdemarsson – netfang: baldvin@afe.is – sími 460 5701
Vigdís Rún Jónsdóttir – netfang: vigdis@eything.is – sími 464 9935

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026