Unnið að skilgreiningu á hlutverki SAk sem varasjúkrahúss

Unnið að skilgreiningu á hlutverki SAk sem varasjúkrahúss

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að skilgreina hvaða kröfur Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) þurfi að uppfylla til að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem varasjúkrahús Landspítala (LSH). Í lögum um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um að SAk sé varasjúkrahús LSH en hvergi er skilgreint hvað felist í því hlutverki. „Þetta þarf að vera skýrt ef á reynir, þ.e. hvaða þjónustu sjúkrahúsið þarf að geta veitt og hvaða búnaður þarf að vera fyrir hendi, einkum á sviði bráðaþjónustu“ segir heilbrigðisráðherra á vef Stjórnarráðsins.

Starfshópurinn skal í vinnu sinni taka mið af þjóðaröryggisstefnu, almannavarnarlögum og viðbragðsáætlunum jafnframt því að meta möguleika Landspítala og annarra stofnana til að bregðast við ófyrirséðum aðstæðum.

Á SAk er bráðamóttaka, gjörgæslurými, lyflækningadeild, geðdeild, skurðdeild, fæðingardeild og barnadeild. Þar er einnig öflug rannsóknarþjónusta og lyfjaþjónusta. Við heilbrigðisstofnanir landsins er aðeins fyrir hendi hluti þessarar þjónustu sem skapar Landspítala og SAk sérstöðu á landsvísu.

Stjórnendur SAk hafa lengið kallað eftir því að hlutverk spítalans sem varasjúkrahús LSH verði skilgreint, líkt og nú hefur verið ákveðið. 

Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk, mun taka sæti í starfshópnum. Hún segir það sannarlega fagnaðarefni að ráðherra hafi ákveðið að skipa starfshópinn „Það skiptir okkur ákaflega miklu máli að hlutverk SAk sem varasjúkrahús landsins sé skýrt, enda höfum við mikinn metnað til að sinna okkar hlutverki af fagmennsku og heilindum, til heilla fyrir þjóðina alla“ segir Hildigunnur í umfjöllun um málið á vef SAk að þessu tilefni.

Skipan starfshópsins

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er formaður starfshópsins. Hún hefur víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum innan heilbrigðiskerfisins og var um árabil í framvarðarsveit Landspítala þar sem hún gegndi m.a. tímabundið embætti forstjóra. Aðrir fulltrúar í starfshópnum eru:

  • Þórir S. Sigmundsson, tilnefndur af Landspítala
  • Hildigunnur Svavarsdóttir, tilnefnd af Sjúkrahúsinu á Akureyri
  • Margrét Helga Ívarsdóttir, tilnefnd af Sjúkratryggingum Íslands
  • Björn Geir Leifsson, tilnefndur af embætti landlæknis
  • Björg Guðjónsdóttir, tilnefnd af Nýja Landspítalanum ohf.
  • Guðrún Lísbet Níelsdóttir, tilnefnd af Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra
  • Guðjón Hauksson, tilnefndur sameiginlega af Heilbrigðisstofnunum Austurlands, Vestfjarða og Norðurlands.
Sambíó

UMMÆLI

Sambíó