Ungmennafélag Akureyrar er fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Í vikunni tók Ungmennafélag Akureyrar (UFA) við viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Það var Kristín Sóley Björnsdóttir sem veitti viðurkenningunni viðtöku en hún stjórnaði vinnu við gerð gæðahandbókar um starfsemi félagins sem liggur til grundvallar viðurkenningunni.

Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti viðurkenninguna en með þeim á myndinni eru f.h. Unnar Vilhjálmsson þjálfari, Jóna Jónsdóttir formaður UFA ásamt Katrínu Sól Þórhallsdóttur og Birni Vagni Finnssyni sem bæði æfa með meistaraflokk UFA.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!