Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina

Unglingalandsmót UMFÍ er haldið ár hvert um verslunarmannahelgina, að þessu sinni á Sauðárkróki 30. júlí – 2. ágúst 2025. Þetta kemur fram á vef Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA).
Mótið er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11 – 18 ára taka þátt í hinum ýmsu íþróttagreinum. Samhliða keppninni er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki, skemmtun og lifandi stemningu fyrir fjölskylduna alla helgina.
Þátttakendur þurfa hvorki að vera skráðir í íþróttafélag né æfa íþróttir til að geta tekið þátt. Þátttakendur þurfa heldur ekki að vera með lið til að geta keppt í ýmsum greinum, svo sem körfubolta eða fótbolta. Starfsmenn og sjálfboðaliðar UMFÍ sjá um að búa til lið fyrir þátttakendur sem ekki eru í liði eða koma viðkomandi í lið.
Bæði foreldrar og yngri og eldri systkini sem ekki keppa í greinum geta notið á Unglingalandsmótinu alla helgina því samhliða keppninni er boðið upp á fjölbreytta afþreytingu, leiki og skemmtun alla daga mótsins.
Mótsgjaldið er 11.900 krónur fyrir hvern þátttakanda. Innifalið í því er þátttaka í öllum keppnisgreinum mótsins, aðgang að viðburðum og frítt í sund í öllum sundlaugum Skagafjarðar alla mótshelgina. Yngri systkini greiða ekkert þátttökugjald en geta engu að síður tekið þátt í fjölbreyttri afþreyingu og skemmtilegum viðburðum sem í boði eru frá morgni til kvölds. Skráning er í fullum gangi og lokar á miðnætti 26. júlí.
Á Unglingalandsmóti UMFÍ keppa þátttakendur undir nöfnum íþróttahéraða landsins og því keppa skráðir þátttakendur ÍBA undir merkjum þess. Fjölmörg íþróttahéruð styrkja þátttakendur af sínu svæði að hluta eða öllu leyti. ÍBA styrkir þátttakendur ÍBA um helming af þátttökugjaldinu svo þátttökugjaldið er þá einungis 5.950 kr. á keppanda. Því er mikilvægt að velja rétt íþróttahérað við skráningu.
Við skráningu, sem fram fer í gegnum Abler, er netfang þátttakenda nýtt til að senda út mikilvægar upplýsingar um mótið og dagskrá þess. Með skráningu samþykkja þátttakendur einnig að myndir og myndbönd sem tekin eru á mótinu megi nýta í kynningar- og útgáfuefni UMFÍ. Jafnframt er veitt heimild til að birta nöfn þátttakenda á heimasíðu UMFÍ í tengslum við ráslista, úrslit og aðrar upplýsingar sem tengjast framkvæmd mótsins.
Nánari upplýsingar um mótið, dagskrá og skráningu (leiðbeiningar) má finna á heimasíðu UMFÍ.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










