MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Umsóknarfrestur um styrki vegna Akureyrarvöku rennur út á mánudag

Eftir Ingólfur Stefánsson·
akureyrarvaka-1800×1044-1
Mynd: Akureyri.is· kaffid.is

Akureyrarvaka, afmælishátíð Akureyrarbæjar, verður haldin helgina 28.–29. ágúst. Stefnt er að fjölbreyttri og lifandi dagskrá um allan bæ með viðburðum fyrir íbúa og gesti á öllum aldri. Nú styttist í að umsóknarfrestur um styrki vegna viðburða á Akureyrarvöku renni út, en frestur til að sækja um er til og með mánudeginum 29. júní.

Veittir verða styrkir að hámarki 300.000 krónur. Sótt er um í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar.

Rökkurró í Lystigarðinum verður á sínum stað á föstudagskvöldinu. Á laugardeginum tekur við fjölbreytt dagskrá og um kvöldið verður miðbærinn lífgaður upp með tónlist, listum og uppákomum á mörgum stöðum í stað eins stórs tónleikaviðburðar.

Listafólk, fyrirtæki, félög og bæjarbúar eru hvött til að senda inn hugmyndir og taka þátt í að skapa einstaka stemningu á Akureyrarvöku. Sérstaklega er kallað eftir skapandi verkefnum sem geta lífgað upp á miðbæinn og önnur svæði bæjarins.

Hvort sem um er að ræða tónleika, sýningu, leiklist, dans, gjörning, smiðju, matarmenningu eða aðra viðburði er markmiðið að skapa fjölbreytta hátíð þar sem eitthvað er að gerast á hverju horni.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026