Umsækjendur um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri

Heilbrigðisráðuneytið auglýsti starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsókna þann 26. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 23. mars. Nú hefur heilbrigðisráðuneytið birt lista yfir umsækjendur en alls bárust sjö umsóknir um starfið.

Hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila ráðgefandi álitsgerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í stöðuna til 5 ára. Nefndin starfar samkvæmt 39.gr.b. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Alls bárust 7 umsóknir um starfið og hér eru nöfn og starfsheiti umsækjenda:

  • Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Erla Björnsdóttir, settur forstjóri
  • Guðjón Hauksson, forstjóri
  • Gunnar Líndal Sigurðsson, verkefnastjóri
  • Hermann Jóhannesson, flugvallastjóri
  • Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri
  • Snjólaug Svala Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!