Fleiri bílastæði í Hlíðarfjall
Eftir María Hjelm·

Umhverfis- og mannvirkjaráð hefur samþykkt að ráðast í framkvæmdir við fjölgun bílastæða í Hlíðarfjalli. Á fundinum var lagt fram minnisblað frá 3. júlí 2026 um fyrirhugaðar framkvæmdir við landmótun og bílastæði á svæðinu við Hlíðarfjall. Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls og Jónas Stefánsson, svæðisstjóri Hlíðarfjalls, sátu einnig fundinn.
„Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fara í framkvæmdir við fjölgun bílastæða, nýtt verður efni úr Móahverfi í verkefnið. Jafnframt verður hafinn undirbúningur við framkvæmdir vegna landmótunar í Hjallabraut í haust,“ segir í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










