Umferðarlokanir vegna Akureyrarhlaupsins í dag

Akureyrarhlaupið fer fram í dag, fimmtudaginn 2. júlí, með ræsingu og endamarki við Hof. Vegna hlaupsins verður Hjalteyrargata lokuð til norðurs frá Gránufélagsgötu að Óseyri á meðan á viðburðinum stendur. Hliðargötur við Hjalteyrargötu til austurs lokast einnig. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Fyrir nauðsynlega atvinnustarfsemi verður umferð hleypt í gegnum lokunarpósta eftir því sem aðstæður leyfa.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna hlaupurum, starfsmönnum og öðrum vegfarendum tillitssemi og gera ráð fyrir tímabundnum töfum á umferð.
Akureyrarhlaupið hefur verið árviss viðburður frá árinu 1992. Boðið er upp á þrjár vegalengdir 5 km, 10 km og hálfmaraþon. Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni.
Nánari upplýsingar um hlaupið má finna á hlaup.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










