Um hundrað manns mættu í friðargöngu á Akureyri í gærkvöld, en gengið var frá Akureyrarkirkju niður á ráðhústorgið. Gengið var til að mótmæla kjarnorkuvopnum.
Nokkuð kalt var á Akureyri en það stoppaði þó fólk ekki í að taka þátt í þessari árlegu göngu. Samstarfshópur friðarhreyfinga stendur fyrir göngunni.
UMMÆLI