MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Úlfar Örn skrifar undir samning út 2026 við KA

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
medium_ulfarorn-sida
kaffid.is

Úlfar Örn Guðbjargarson hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild KA út 2026 en Úlfar er að koma upp úr yngriflokkastarfi KA.

„Úlfar sem verður 18 ára í næsta mánuði hefur þrátt fyrir ungan aldur verið viðloðinn meistaraflokk KA og er nú klár í að taka næsta skref. Auk þess að leika með 3. flokk félagsins hefur hann einnig leikið með meistaraflokksliði Hamranna sem leikur í 2. deild,“ segir á vef KA. „Það er ákaflega jákvætt að Úlfar sé búinn að skrifa undir samning og verður spennandi að fylgjast með framgöngu hans næstu árin og óskum við honum sem og handknattleiksdeild KA til hamingju með samninginn.“

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026