Við á Kaffinu erum að sjálfsögðu á Twitter og munum birta það skemmtilegasta þaðan á degi hverjum.
Mér finnst fyndið að girða barnið mitt hátt
— Fanney Svansdóttir (@fanneysvansd) November 4, 2016
Bíta KitKat en ekki brjóta það. Einnig, bíta í lakkrísreimar í stað þess að draga þær í sundur.
— Jóhann Óli Eiðsson (@jedissson) November 4, 2016
Mér finnst mjög leiðinlegt hvað nóvember er orðinn skemmtilegur og líflegur. Hann var alltaf uppáhalds leiðinlegi mánuðurinn minn.
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) November 4, 2016
Fólkið í götunni er í mat og eg henti í "þarf eg að keyra einhvern heim" ha ha
— Whale City (@hrefnaborrg) November 4, 2016
Ætlaði að kynna hjásvæfuna og bestu vinkonuna. Róleg stemning. Kerti. Heitur brauðréttur. Hann mætti blindfullur og ældi niður af svölunum.
— Sóley Bergsteinsd. (@SoleyBergsteins) November 4, 2016
Sigga Kling sagði að ástin myndi blómstra hjá mér. Dagurinn byrjaði einmitt á að fyrrum skólafélagi (frá því fyrir 7 árum) reyndi við mig.
— Nanna Hermannsdóttir (@nannahermanns) November 4, 2016
Mega Hagkaup bara auglýsa „þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að versla“ að eilífu?
— Brynhildur Bollad. (@brynhildurbolla) November 4, 2016
UMMÆLI