Tvö teymi úr Drift EA valin í TINC

Fyrirtækin Unnur Verkbókhald og Sea Thru hafa verið valin til þátttöku í alþjóðlega hraðalnum TINC í haust. Bæði fyrirtækinum hafa tekið þátt í Hlunninum hjá Drift EA á Akureyri.
TINC er sex vikna alþjóðlegur hraðall sem þróaður er af Innovation Norway og rekinn í samstarfi við Vinnova, Business Finland og KLAK – Icelandic Startups. Dagskráin hefst með kynningardögum í Osló núna í lok september, heldur áfram með fjarfundum yfir haustið og lýkur með viðamikilli dagskrá í Kísildalnum í San Francisco í nóvember.
Í Kísildalnum fá þátttakendur aðgang að sérfræðingum og fjárfestum úr einu samkeppnishæfasta nýsköpunarumhverfi heims, með áherslu á að skerpa á vörumarkaðssamræmi, viðskiptamódelum og vaxtarmöguleikum. 278 norræn tæknifyrirtæki hafa þegar farið í gegnum hraðalinn og eru Unnur Verkbókald og Sea Thru að bætast við þá flóru fyrirtækja.
Unnur Verkbókhald þróar stafræna lausn fyrir iðnaðarmenn og verktaka sem einfaldar tímaskráningu, efnissölu og verkefnastýringu.
Sea Thru þróar stafrænt gagnalag fyrir sjávarútvegsfyrirtæki sem tengir saman rekjanleikagögn úr ólíkum kerfum og skapar heildstætt yfirlit yfir ferðalag sjávarafurða.
„Þetta er því ekki bara stór áfangi fyrir teymin tvö og Drift EA, heldur sýnir líka hvað getur gerst þegar góðar hugmyndir af landsbyggðinni fá stuðning, fjármagn og rétta tengingu snemma í sprotaferlinu, en þá er alþjóðlegi vettvangurinn nær en maður heldur,“ segir í tilkynningu á samfélagsmiðlum Drift EA.
Tengdar greinar
Uppfært: 24. september 2026





