Tvö ný smit greindust í gær á Norðurlandi eystra en báðir aðilar voru í sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í dag. Alls eru 57 virk smit á svæðinu og 46 í sóttkví. Flest virku smitin eru á Akureyri, eða 48 talsins.
Á miðnætti í dag taka gildi varfærnar tilslakanir á gildandi samkomutakmörkunum. Lögreglan hvetur fólk til að fara áfram varlega og halda sóttvörnum í algjöru hámarki.
Breytingarnar sem taka gildi miðvikudaginn 18. nóvember eru eftirfarandi:
- Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar milli fólks verður leyfð með þeim skilyrðum að notast sé við andlitsgrímur. Þetta á við um s.s. hárgreiðslustofur, nuddstofur, öku- og flugkennslu og sambærilega starfsemi. Hámarksfjöldi viðskiptavina á sama tíma er 10 manns.
- Æfingar, íþróttastarf, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt jafnt inni og úti. Til að slíkt starf geti farið fram eru engar takmarkanir settar varðandi blöndun milli hópa. Fjöldamörk í hverju rými fara eftir reglugerð um takmarkanir á skólastarfi. Leikskólabörn og börn í 1.–4. bekk grunnskóla mega vera 50 saman að hámarki en nemendur í 5.–10. bekk að hámarki 25 saman.
- Í skólastarfi á framhaldsskólastigi mega nemendur og starfsmenn vera að hámarki 25 í hverju rými í stað 10 áður en ber að nota andlitsgrímur sé ekki unnt að halda 2 metra fjarlægð.
- Veitt er undanþágu frá grímuskyldu þeim sem ekki geta notað grímur, t.d. af heilsufarsástæðum eða ef viðkomandi skortir þroska eða skilning til að bera grímu. Þeir sem fengið hafa COVID-19 eru einnig undanþegnir grímuskyldu geti þeir sýnt gilt vottorð þess efnis.
UMMÆLI