MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Tveir starfsmenn sem hafa starfað við VMA frá upphafi hætta störfum

Eftir Ingólfur Stefánsson·
27.05.2026-vma-sexmenningarnir-kvaddir-0496
Frá vinstri: Jóhann Björgvinsson, Erna H. Gunnarsdóttir, Hálfdán Örnólfsson, Ingimar Árnason, Þorsteinn Krüger og Jóhannes Áslaugsson. Mynd: Hilmar Friðjónsson.· kaffid.is

Á starfsmannafundi í VMA síðastliðinn miðvikudag, síðasta starfsmannafundi skólaársins, var sex starfsmönnum skólans sem láta af störfum nú í vor sérstaklega þakkað fyrir farsæl störf sín við skólann og þeim færðar gjafir á þessum tímamótum. Tveir af starfsmönnunum hafa starfað við skólann frá upphafi. Greint er frá á vef VMA.

Þau Erna Hildur Gunnarsdóttir enskukennari og Hálfdán Örnólfsson, samfélagsgreina- hagfræði-, tölvugreina- og stærðfræðikennari, hafa starfað við skólann frá því að hann var settur á stofn árið 1984.

Hinir fjórir starfsmennirnir sem nú láta af störfum eru Ingimar Árnason kennari vélstjórnar- og raungreina, Jóhann Björgvinsson kennari vélstjórnargreina, Jóhannes Áslaugsson stuðningsfulltrúi og Þorsteinn Krüger samfélagsgreinakennari.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026