Tveir lögregluþjónar á Norðurlandi eystra eru nú í sóttkví eftir að hafa átt í samskiptum við manneskju sem síðar reyndist með Covid-19 smit. Þetta staðfestir Jóhannes Sigfússon, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á Norðurlandi eystra, í samtali við mbl.is.
Á vef mbl.is segir að lögregluþjónarnir muni fara í skimun og sæta í kjölfarið 14 daga sóttkví óháð niðurstöðu skimunar. Lögregluþjónarnir sýna enn sem komið er engin einkenni.