Tveir keppendur frá Karatefélagi Akureyrar unnu til verðlauna á Reykjavíkurleikunum

Karatekeppni Reykjavíkurleikanna fór fram laugardaginn 24. janúar síðastliðinn og tveir keppendur frá Karatefélagi Akureyrar unnu til verðlauna.  Keppt var í kata fyrir hádegi og kumite eftir hádegi.

Ruofeng Halldórsson Xi vann gullverðlaun í kumite og Alex Parraguez Solar vann brons í kata og brons í kumite.

Í kata keppa þátttakendur í fyrirfram ákveðnum hreyfi- og tæknirútínum (kata), sem eru margar og fjölbreyttar og geta verið mismunandi eftir karate-stílum. Kumite er bardagahluti keppninnar þar sem tveir keppa hvor gegn öðrum, og er keppt í þyngdarflokkum innan aldurshópa.

Alls voru 13 klúbbar skráðir til leiks. Auk keppenda frá Íslandi tóku einnig þátt keppendur frá Frakklandi, Lettlandi og Pólandi, sem gaf keppninni skýran alþjóðlegan svip.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!