Tveir í gæsluvarðhald eftir stunguárás

Í færslu sem Lögreglan á Norðurlandi eystra birti á Facebook kemur fram að lögreglan rannsaki nú stórfellda líkamsárás sem átti sér stað í heimahúsi á Akureyri aðfaranótt föstudagsins 10. apríl. Maður leitaði á bráðamóttöku með stunguáverka og gekkst undir skurðaðgerð, hann er ekki í lífshættu.

Tveir aðilar hafa verið úrskurðaðir í viku gæsluvarðhald vegna málsins. Rannsóknin er unnin í samstarfi við tæknideild LRH og sérsveit ríkislögreglustjóra en lögregla skoðar hvort um tilraun til manndráps hafi verið að ræða.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!