MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Tveir fyrrum nemendur úr MA hljóta styrki

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
l_1412332721_ma_gamli
Menntaskólinn á Akureyri· kaffid.is

Óðinn Andrason og Rakel María Óttarsdóttir, tveir fyrrverandi MA-ingar fengu nýlega styrki fyrir afburðaárangur þeirra í háskólanámi. Þetta kemur fram á vef MA, þar segir einnig:

Óðinn Andrason (stúdent 2022), BS-nemi á þriðja ári í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, hlaut rétt fyrir jól styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, afhenti styrkinn ásamt frú Vigdísi Finnbogadóttur, systur Þorvalds. Óðinn stefnir á framhaldsnám í vélaverkfræði í Bandaríkjunum. Sjá frétt HÍ.

Tveir fyrrum nemendur úr MA hljóta styrki
Mynd/Gunnar Sverrisson

Rakel María Óttarsdóttir Ellingsen (stúdent 2021) var önnur tveggja efnilegra stærðfræðinema sem hlaut í vikunni úthlutað styrk úr Minningarsjóði Hjalta Þórs Ísleifssonar, ungs stærðfræðings sem lést fyrir rúmu ári. Móðir hans vill að andlát hans verði öðrum hvatning í stærðfræðiheiminum. Rakel María stefnir á framhaldsnám í Oxford. Sjá frétt RUV.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026