Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Tvær nýjar námsleiðir við HA

Eftir Ingólfur Stefánsson·
www.danielstarrason.com
www.danielstarrason.com· kaffid.is

Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti á fundi sínum 26. september að setja á laggirnar nýtt þriggja ára bakkalárnám í Áfengis- og vímuefnaráðgjöf við Hjúkrunarfræðideild. Háskólaráð samþykkti einnig að setja á laggirnar nýtt nám í Kennslu íslensku sem annars máls við Kennaradeild. Námið svarar vaxandi þörf fyrir sérhæfingu kennara í fjöltyngdu skólasamfélagi.

Námi í áfengis- og vímuefnaráðgjöf ætlað að styrkja sérhæfingu fagfólks

Námið er 180 ECTS-einingar og verður það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en hingað til hefur Símenntun HA verið með umfangsmikil námskeið á þessu sviði. Með námsleiðinni er brugðist við brýnni þörf fyrir formlega háskólamenntun á þessu sviði og aukinni eftirspurn eftir sérhæfðu fagfólki innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu.

Námið mun búa stúdenta undir störf við forvarnir, ráðgjöf, meðferð og endurhæfingu einstaklinga með fíknivanda og fjölskyldna þeirra. Rík áhersla verður lögð á klíníska þekkingu og færni, gagnreyndar aðferðir, fagmennsku, rannsóknarlæsi og þverfaglega teymisvinnu. Námið verður að mestu kennt í fjarnámi með reglulegum staðlotum við háskólann og klínísku námi á viðeigandi vettvangi.

Fyrirkomulag námsins

Megináherslur í náminu eru á klíníska þekkingu og færni, styrkingu fagmennsku og rannsóknarlæsi. Áætlað er að 15 stúdentar hefji nám í fyrsta árgangi haustið 2027. Námsleiðin verður vistuð við Hjúkrunarfræðideild á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði háskólans og byggir að stórum hluta á námskeiðum sem þegar eru kennd við háskólann. Jafnframt verða þróuð sex ný, sérhæfð klínísk námskeið í áfengis- og vímuefnaráðgjöf.

Með nýja náminu tekur Háskólinn á Akureyri mikilvægt skref í að efla menntun, fagmennsku og þjónustugæði á sviði fíknivanda. Námið mun skapa skýrari starfsleið fyrir framtíðaráfengis- og vímuefnaráðgjafa, styrkja stöðu fagstéttarinnar og auka möguleika heilbrigðis- og félagsþjónustu um land allt til að veita einstaklingum og fjölskyldum þeirra heildræna og gagnreynda þjónustu.

Nám í kennslu íslensku sem annars máls

Nemendum með annað móðurmál en íslensku hefur fjölgað jafnt og þétt í íslenskum skólum. Á tíu árum, frá 2013 til 2023, meira en tvöfaldaðist hlutfall grunnskólanemenda með annað móðurmál en íslensku, úr 6,5% í 15,5%, samkvæmt Hagstofu Íslands. Rannsóknir benda til þess að efla þurfi stuðning við námslegar og félagslegar þarfir fjöltyngdra nemenda og að þörf er fyrir aukna áherslu á fjöltyngi og kennslu íslensku sem annars máls í kennaramenntun á Íslandi.

Námið svarar ákalli og brýnni samfélagsþörf

„Kennarar hafa kallað eftir fleiri tækifærum til að sérhæfa sig í kennslu íslensku sem annars máls. Einnig segir í stefnu háskólans til ársins 2030 að lögð sé áhersla á lifandi, metnaðarfullt og framsækið nám og nýsköpun í takt við þarfir samfélagsins. Með þessu námi er brugðist við því ákalli og gengið í takt við stefnumótun. Við viljum efla kennara til að styðja við nám og þátttöku fjöltyngdra nemenda og byggjum þar á öflugri sérþekkingu innan háskólans,“ segir Tom Barry, sviðsforseti Hug- og félagsvísindasviðs.

Innan Kennaradeildar er víðtæk þekking á fjöltyngi, máltöku, læsi og tungumálakennslu. Auk þess verður auglýst sérstök staða innan deildarinnar til að sinna þessari kennslu.

Fyrirkomulag námsins

Námið var hannað í samstarfi við lykilaðila í kennslu íslensku sem annars máls í leik- grunn- og framhaldsskólum auk aðkomu Miðstöðvar skólaþróunar við HA. Boðið verður upp á þrjú ný sérnámskeið um kennslu íslensku sem annars máls auk þess sem námsleiðin byggir á námskeiðum sem þegar eru kennd við Kennaradeild. Starfandi kennarar geta lokið 60 eininga viðbótardiplómu á einu ári eða 120 eininga

Tengdar greinar

Uppfært: 14. október 2026