MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Tuttugu milljónir króna til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screen Shot 2021-12-21 at 12.43.57
kaffid.is

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 20 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey. Kirkjan sem brann til grunna 22. september sl. var elsta bygging eyjarinnar, byggð 1867, og var hún friðuð árið 1990.

Miðgarðakirkja hefur þjónað mikilvægu samfélagslegu hlutverki meðal Grímseyinga og eru íbúar staðráðnir í að reisa nýja kirkju sem geti nýst bæði við helgihald og til menningarviðburða.

Áætlaður heildarkostnaður við byggingu nýrrar kirkju er um 100 milljónir króna en tryggingabætur nema um 30 milljónum króna. Þá hefur sóknarnefnd Miðgarðakirkju staðið fyrir fjáröflun þar sem þegar hafa safnast um 12 milljónir króna. Vonir standa til þess að framkvæmdir geti hafist næsta sumar og að ný kirkja verði tilbúin að utan í september þegar ár verður liðið frá brunanum.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026