Tryggvi Snær Hlinason og Rut Herner Konráðsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka Þórs í körfubolta leiktíðina 2016-2017 á lokahófi sem haldið var í gærkvöldi í félagsheimili Þórs, Hamri.
Þau Erna Rún Magnúsdóttir og Sindri Davíðsson voru valin bestu varnarmenn liðanna. Efnilegustu leikmenn meistaraflokka voru valin þau Hrefna Ottósdóttir og Ragnar Helgi Friðriksson.
UMMÆLI