MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Tryggvi nýr formaður Einingar-Iðju

Eftir Ingólfur Stefánsson·
tryggvi eining iðja
kaffid.is

Í dag, 1. júní 2026, tók Tryggvi Jóhannsson við sem formaður Einingar-Iðju. Í tilkynningu á vef Einingar-Iðju segir að Tryggvi sé fullur tilhlökkunar að taka við félaginu.

„Ég hlakka til samstarfsins við félagsmenn við að gera okkar góða félag enn betra,“ segir Tryggvi. Hann tekur við af Önnu Júlíusdóttur sem vann sinn síðasta formlega dag sem formaður síðastliðinn föstudag.

Anna tilkynnti á aðalfundi félagsins í apríl að hún hefði tekið þá ákvörðun að láta af störfum hjá félaginu frá og með 1. júní, bæði sem starfsmaður sem og formaður. Þá sagði hún m.a. að í lögum félagsins er það þannig að varaformaður tekur við formennskunni og ný stjórn félagsins muni svo taka ákvörðun um hver tekur að sér hlutverk varaformanns.

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar sem fram fór nýlega var samþykkt samhljóða að Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir myndi taka að sér hlutverk varaformanns. Elsa Hrönn mun hefja störf hjá félaginu á morgun.

Tryggvi var kjörinn varaformaður félagsins 2024 en hafði setið sem starfandi varaformaður frá árinu 2023. Hann hefur setið í stjórn félagsins frá 2017, en þá kom hann inn í hana sem nýr formaður Matvæla- og þjónustudeildar. Áður en hann tók við sem formaður deildarinnar hafði hann setið sem varaformaður hennar frá árinu 2014, ritari frá árinu 2012 og meðstjórnandi frá árinu 2008.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026