Treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Eflaust hafa einhverjir orðið varir við að starfsmenn fyrirtækja og aðrir ganga um í íþróttatreyjum í dag en ástæðan er sú að Treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi í dag. Treyjudagurinn haldinn víða um heim til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Á vef ÍBA segir: Treyjudagurinn er haldinn á þessum degi á hverju ári en í ár tekur Ísland þátt í fyrsta sinn.
Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhalds treyjunni sinni og sýna þessu mikilvæga málefni stuðning og samstöðu.
Börn með krabbamein, styrktarfélag stendur að deginum en félagið var stofnað árið 1991 til að styðja við bakið á krabbameinssjúkum börnum og fjölskyldum þeirra með ýmsum hætti.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










