Tónlistarsmiðja með Gretu Salóme og Agli Andrasyni 

Tónlistarsmiðja með Gretu Salóme og Agli Andrasyni 

Þann 26. janúar næstkomandi munu þau Greta Salóme og Egill Andrason halda tónlistarsmiðju fyrir börn í 5. til 10. bekk í grunnskólum á Norðurlandi eystra. Takmarkaður fjöldi þátttakanda er í smiðjuna en ekkert þátttökugjald.

Skráning fer fram HÉR

Tónlistarmsmiðjan er fyrir þau sem vilja kynnast því

að fá hugmyndir að því að semja sitt eigið lag

hvernig hægt er að semja tónlist

að greina form laga

að semja saman í hóp

Gretu Salóme þekkja flestir Íslendingar enda hefur hún tvisvar sinnum verið fulltrúi
Íslands í Eurovision. Greta er tónlistarstjóri UPPTAKTSINS á Akureyri og hefur verið síðan 2021.

Egill Andrason er tónlistarmaður, sem hefur verið tilnefndur til Grímuverðlauna. Hann hefur samið tónlist m.a. fyrir Leikfélag Akureyrar og Þjóðleikhúsið. Hann er meðal höfunda laga og texta í sýningunni Teenage Songbook of Love and Sex sem hefur verið sýnd víðsvegar um Evrópu síðustu 5 ár. Árið 2021 gáfu hann og Eik Haraldsdóttir út plötuna Lygasögur, popprokkplötu sem þau sömdu á aldrinum 12-18 ára. Egill er jafnframt spunapíanóleikari Improv Íslands og semur söngleiki á staðnum með því félagi. 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó