MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Tónlistarhatíðin Kveldúlfur haldin í annað sinn

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Screenshot-2026-08-13-190925
Ljósmynd: Kveldúlfur· kaffid.is

Tónlistarhatíðin Kveldúlfur verður haldin á Hjlateyri næstkomandi laugardag í annað sinn. Fram koma:

Amor Vincit Omnia, Benni Hemm Hemm, Bent, Hjálmar, Inspector Spacetime, Kusk & Óviti, Lúpína, Pitenz, RAKEL, Saint Pete og Salóme Katrín.

Á hátíðinni verður hægt að kíkja á opnar vinnustofur hjá Kötlu Studio og Vikari Mar, fá sér tattú eða göt hjá Amor tattoo, stunda klifur og kraftlyftingar hjá KFA, skella sér í heita pottinn og skoða sýninguna Sýni/contingency sample sem verður opin í Verksmiðjunni.

Um hátíðina segir á vef hennar: Hátíðin var fyrst haldin í júlí 2025 og er óhagnaðardrifinn menningarviðburður. Tilgangurinn er að skapa stuð og stemningu sem tosar ekki of mikið í budduna.

Við trúum því að menning ætti að vera öllum aðgengileg og vinnum hart að því að halda miðaverði í lágmarki.

Hátíðin dregur nafn sitt af Kveldúlfi, fyrirtæki sem rak verksmiðjuna árum áður. Síldarverksmiðjan var um tíma sú elsta í heiminum og var stofnuð árið 1937.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026