Tónlistarhátíðin Berjadagar haldin í Ólafsfirði um helgina
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Tónlistarhátíðin Berjadagar, eða Olafsfjordur Music Festival, fer fram í Ólafsfirði dagana 26. til 28. júní næstkomandi. Á hátíðinni er lögð áhersla á flutning klassískrar tónlistar og þjóðlaga. Meðal framkomenda eru óperusöngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), og Hrólfur Sæmundsson, Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari, sem jafnframt er listrænn stjórnandi hátíðarinnar, og tónlistarmaðurinn Svavar Knútur. Á dagskrá eru meðal annars einleiksverk, óperuaríur og frumflutningur nýrra laga, auk viðburða á borð við vöfflukaffi og samflotsgöngu í Árdal.
Nánari upplýsingar má finna á vef hátíðarinnar.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










