MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Tónleikar til styrktar Lystigarðinum

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Screenshot-2026-08-21-095756
kaffid.is

Á morgun þann 22. ágúst verða haldnir útitónleikar í Lystigarðnum þar sem Moses Hightower munu mæta og Kött Grá Pje verður sérstakur gestur. Tónleikarnir eru styrktartónleikar þar sem ágóðinn mun renna til garðsins sjálfs.

„Lystigarðurinn á Akureyri hefur verið opinn öllum, án endurgjalds, alla tíð. Það eru algjör forréttindi sem við Akureyringar megum ekki taka sem sjálfsögðum hlut. Garðurinn er staður sem við getum notið allt árið um kring og nú getum við lagt okkar af mörkum til að gera hann enn betri,“ segir í tilkynningu frá Lyst en á vefsíðu þeirra má kaupa miða á tónleikana.

Sömuleiðis eru aðrir en íbúar Akureyrar og jafnvel þeir sem sjá sér ekki fært að mæta á tónleikana hvattir til þess að styrkja Lystigarðinn með því að kaupa miða.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026