Tónleikar í sundlauginni á Hrafnagili
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Karlakór Eyjafjarðar heldur tónleika í sundlauginni í Hrafnagilshverfi fimmtudaginn 27. ágúst kl. 20.00. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eyjafjarðarsveit, þar segir einnig:
Tónleikarnir eru styrktir af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Þeir eru hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026“ en verkefnið var sett af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugarmenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.
Aðgangur er ókeypis og geta gestir annað hvort verið í sundlaug eða pottum – á meðan „húsrúm leyfir,“ eða staðið á sundlaugarbakkanum.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










