MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Tólf tóna kortérið næsta laugardag í Listasafninu

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
medium_481447307_1388358252441808_4512067317592169612_n
kaffid.is

Laugardaginn 8. mars kl. 15.00-15.15 og kl. 16.00-16.15 verður Tólf tóna kortérið á dagskrá í sal 04 í Listasafninu. Pamela de Sensi og Vilhjálmur Ingi Sigurðarson munu frumflytja Fimm smálög eftir Steingrím Þórhallsson og leika Face to Face eftir Edoardo Dinelli. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

„Pamela og Vilhjálmur eru ötulir flytjendur nýrrar tónlistar, ýmist saman eða sitt í hvoru lagi. Vilhjálmur býr á Akureyri, kennir á trompet við Tónlistarskólann á Akureyri og leikur m.a. með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Pamela kennir á þverflautur af ýmsum stærðum og gerðum við Tónlistarskólann í Kópavogi og er m.a. stofnandi tónlistarhátíðarinnar WindWorks í Reykjavík og á Norðurlandi. Þau leika reglulega saman nýja tónlist úr ýmsum áttum,“ segir á vefsíðu Listasafnsins.

Tólf tóna kortérið er samstarfsverkefni Tónlistarskólans á Akureyri og Listasafnsins á Akureyri og hlaut styrki frá Sóknaráætlun Norðurlands Eystra, Menningarsjóði FÍH og Tónskáldasjóði Rúv/Stefs.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026