Framsókn

Tólf skólar keppa í Fiðringi á Norðurlandi

Tólf skólar keppa í Fiðringi á Norðurlandi

Það er aftur komið að Firðingi á Norðurlandi og það hefur tognað töluvert úr honum. Í fyrra tóku þátt átta grunnskólar á Akureyri og nærsveitum í þessari hæfileikakeppni sem er að fyrirmynd Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi. Í ár eru það tólf skólar frá Fjallabyggð til Húsavíkur sem etja kappi og því höldum við tvö undankvöld og svo úrslitakvöld.  Undankvöldin fara fram í Tjarnarborg Ólafsfirði 18. apríl og Laugarborg Eyjafjarðarsveit 19. apríl. Úrslitakvöldið fer svo fram í HOFI 25. apríl en það er Menningarfélag Akureyrar sem stendur á bak við Fiðring með dyggum stuðning SSNE, Barnamenningarsjóðs, Samfélagsjóðs Landsbankans, SBA og þátttökuskólanna allra. 

Nemendur á unglingastigi þátttökuskólanna hafa samið sitt eigið atriði og æft af kappi alla vorönnina undir handleiðslu leiðbeinanda og mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og lýðræðisleg vinnubrögð, hugmyndin og útfærslan kemur frá nemendum sjálfum.  Einnig sér hópurinn alfarið um listræna útfærslu hvað varðar búninga, leikmynd, sviðhreyfingar,  ljós og hljóð þannig að þátttaka í Fiðringi er heljarinnar skóli í sjálfu sér.  Hápunkturinn er svo að hitta hin liðin og sýna afraksturinn á leiksviði með allri leikhústækninni og töfrunum.

Það verður spennandi að sjá og heyra hvað unga fólkinu okkar liggur á hjarta; hér fá þau tækifæri til að tjá það á skapandi hátt.

Kynnar á úrslitakvöldinu eru Vandræðaskáldin okkar Sesselía Ólafsdóttir og Vihjálmur B. Bragason og Villi kynnir líka á undankeppnunum.  Fiðringslagið verður flutt í dómarahléi á úrslitakvöldinu en í ár kusu nemendur Röddina í klettunum með Gugusar sem mætir á staðinn og skemmtir áhorfendum. 

Hægt er að næla sér í miða á undankeppnir Fiðrings á litlar 1500 kr á mak.is en úrslitakvöldið fer í ekki í almenna sölu fyrr en 24. apríl.  Komið og sjáið sviðslistafólk framtíðarinnar.

VG

UMMÆLI