Nemendur úr Menntaskólanum á Akureyri náðu góðum árangri í árlegri forritunarkeppni framhaldsskólanna á vegum HR og HA. Á vef MA kemur fram að tólf lið frá skólanum tóku þátt og höfnuðu tvö þeirra í verðlaunasætum.
Í efstu deild keppninnar hafnaði liðið „Forrhitað eða ristað?“ í þriðja sæti, það skipuðu þeir Elvar Björn Ólafsson, Orri Páll Pálsson og Viktor Franz Bjarkason. Þá náði liðið „SyntaxErrorTeymið“ einnig þriðja sæti í delta-deild, skipað þeim Ármanni Snæ Heimissyni, Ármanni Gunnari Benediktssyni og Denys Ivanko.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Aðstandendur keppninnar fögnuðu mikilli þátttöku frá MA og sögðu hana merki um öflugt starf innan skólans. Keppnin hefur verið mikilvægur liður í samstarfi háskólanna um tölvunarfræðinám á Akureyri í yfir áratug.










