MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Töldu að um sprengju væri að ræða við Vaðlaheiðargöng

Eftir María Hjelm·
vaðlaheiðargöng
kaffid.is

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru kallaðir til í gær vegna þess sem talið var að væri sprengja rétt fyrir neðan op Vaðlaheiðarganga vestan megin. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Þar segir að gripurinn reyndist vera búnaður sem var notaður við gerð ganganna.

„Erlendir ferðamenn gerðu lögreglu viðvart á fjórða tímanum í gær eftir að þeir fundu hlutinn í læknum. Talsvert viðbragð var á svæðinu í gær vegna málsins en ekki var farið í víðtækar lokanir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Fljótlega var talið ólíklegt að hluturinn gæti sprungið að sjálfu sér,“ segir í umfjöllun RÚV, sem má lesa í heild sinni hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026